7.6.2012 | 11:40
Útkoman 2012
Kæru félagar, nú hefur okkar skilvísi og ábyrgi gjaldkeri, Birna Birgisdóttir, gert upp herlegheitin og rekstrarniðurstaða reunion 2012 kemur út í ágætum plús svo er happdrætti og þá ekki síður stórskemmtilegu uppboði á happdrættisvinningum fyrir að þakka.
Gjaldkerinn mun liggja á þessu eins og ormur á gulli til ársins 2017 en þá eigum við svolítinn sjóð til að starta framkvæmdinni. Það væri auðvitað gaman að fá frá ykkur hugmyndir um hvernig þið mynduð vilja sjá þetta á 40 ára útskriftarafmælinu en við í undirbúningshópnum höllumst að því að hafa það öllu veglegra í sniðum t.d. með máltíð líkt og var fyrir fimm árum. Hvernig líst ykkur á það?
Kveðja
IMG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2012 | 09:02
Takk fyrir skemmtilegt kvöld
Endilega sendið mér myndir ef þið hafið einhverjar svo við getum sett þær hérna inn - eða fáið hjá mér aðgang að síðunni svo þið getið gert það sjálf.
Kveðja
Ingibjörg
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2012 | 13:36
Enn hægt að bætast í hópinn
Nú hafa 50 manns greitt þátttökugjald svo það stefnir í fínt partý hjá okkur :o) en við getum gefið þeim, sem ekki vilja missa af þessu, tækifæri um helgina til að bætast í hópinn :o)
Greiðið bara 3000 kall inn á reikninginn 544-26-31134, kt. 1003614189 og setjið nafn í skýringu - og málið er dautt ... en fjörið sannarlega ekki
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2012 | 22:58
Stefnir í gott kvöld :o)
Hæ öll.
Undirbúningshópurinn fundaði í kvöld og bar saman bækur sínar og það stefnir allt í flott kvöld hjá okkur þann 16. maí
Fyrir þá sem ekki eru búnir að greiða, þá á að greiða þátttökugjald 3000 kr. í síðasta lagi á morgun, 10. maí, inn á reikninginn 544-26-31134, kt. 1003614189 og setja nafn í skýringu þannig að allt sé nú rétt til bókar fært.
Hlakka til að sjá ykkur!
Ingibjörg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2012 | 20:36
Tilkynna þátttöku fyrir 10. maí
Hæ, hæ.
Við biðjum þig um að tilkynna þátttöku og greiða þátttökugjald 3000 kr. í síðasta lagi þann 10. maí inn á reikninginn 544-26-31134, kt. 1003614189. Nauðsynlegt er að setja nafn í skýringu á greiðslunni. (sjá nánar hér neðar)
Hlökkum til að sjá þig
Fyrir hönd undirbúningshóps
IMG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2012 | 17:54
Könnun á mætingu
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.4.2012 | 12:28
35 ára reunion, 16. maí 2012
Manstu ekki eftir mér?
Hvar ertu búinn að vera öll þessi ár?
Þann 16. maí n.k. gefst þér tækifæri til að bera upp þessar spurningar og margar fleiri, við gamla (en vonandi ekki gleymda) skólafélaga því í ár eru liðin 35 ár frá því að við kysstum hvert annað bless eftir samleið í Réttó.
Árið 2007 áttum við afar vel heppnað og skemmtilegt kvöld saman og þá kom fram skýr vilji hópsins til að halda áfram að hittast á fimm ára fresti og að sjálfsögðu er orðið við því Nema hvað?
Þess vegna blásum við enn og aftur í partý-lúðurinn þann 16. maí og nú í sal Karlakórs Reykjavíkur að Grensásvegi 13 (fyrir ofan Pfaff).
Gleðskapurinn hefst með því að boðið verður upp á fordrykkinn " Gandí " á milli kl. 20:00 og 20:30. Einnig verður boðið upp á létta rétti þetta kvöld. Til að halda kostnaði í lágmarki er að öðru leyti gert ráð fyrir að hver og einn taki sínar guðaveigar (áfengi) með sér. Klakar og glös verða á staðnum Kvöldið mun svo líða áfram í góðum félagsskap, undir dyggri veislustjórn og gera má ráð fyrir skemmtilegum og óvæntum uppákomum allt kvöldið.
Við biðjum þig um að tilkynna þátttöku á eitthvert neðangreindra netfanga auk þess að greiða þátttökugjald 3000 kr. í síðasta lagi þann 10. maí inn á reikninginn 544-26-31134, kt. 1003614189. Nauðsynlegt er að setja nafn í skýringu á greiðslunni.
Að lokum vekjum við athygli á því að hópurinn á bæði svæði á facebook.com undir nafninu Réttó ´61 - 35 ára reunion, á slóðinni https://www.facebook.com/groups/340375049335720/ þar sem ýmsar upplýsingar og spjall er að finna og bloggsíðuna www.retto61.blog.is þar sem jafnframt er að finna upplýsingar en einnig fjölda mynda bæði frá skólaárunum og fyrri reunion.
Við hlökkum til að sjá þig
Undirbúningshópurinn:
Birna Birgis, birnabir@simnet.is Carola, carola@simnet.is Gunni Gunn, gunnargu@vordur.is Gúddý, guddy@sial.is Imba, ingmar@hive.is
| Kalli Mar, karlm@riotinto.com Lalli, larus@consello.is Lúlli, ludvikb@tmhf.is Ragga, rthg@visir.is Sæunn, saeunneir@simnet.is
|
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2012 | 13:45
16. maí í sal Karlakórs Reykjavíkur
Jæja áfram er fundað og skipulagt, og nú erum við komin með sal fyrir kvöldið okkar góða. Við verðum í sal Karlakórsins að Grenásvegi 13 (uppi hjá Pfaff) og byrjar gleðin klukkan 20.00. Miðaverði verður stillt í hóf, en það kemur inn síðar þegar við sjáum hver þátttakan er. Og eins og áður hefur komið fram er þetta miðvikudagurinn 16.maí (daginn fyrir uppstigningardag). Við látum svo nýjar upplýsingar inn jafnóðum og því er gott að fylgjast með hérna. Hlökkum til að hitta ykkur öll:)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2012 | 18:48
Takið frá16. maí 2012
Eftir svolitla skoðanakönnun á facebook, um það hvaða dagur hentaði fólki best til að hittast, er niðurstaðan sú að það er 16. maí, sem er miðvikudagur fyrir uppstigningardag. Því er ekki eftir neinu að bíða með að taka daginn frá. Við munum svo setja hér inn nánari upplýsingar eftir því sem þær liggja fyrir.
Endilega gefið okkur merki um að þið séuð að fylgjast með, með því að skrifa í gestabókina eða setja inn athugasemdir þannig að við getum sparað póstkostnað við að koma upplýsingum til allra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)